Komandi viðburðir
Upcoming Events
Landsmót Stemmu
24. apríl, föstudagur
Kl. 18:00 - Hótel Norðurljósum
Kvöldverður
Kl. 20:00 - Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Kvæðatónleikar
1. Opnun: Halldóra Gunnarsdóttir segir örfá orð um Sigurbjörn Vilhjálm Vigfússon, vinnumann á Skinnalóni
Vísur Sigurbjörns kveðnar af félögum Njólu
2. Kvæðasöngur félaga
25. apríl, laugardagur
Kl. 10:00 — 12:00 Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Kveðskaparnámskeið: Kvæðafólk af Norðausturlandi
Leiðbeinandi: Bára Grímsdóttir
Kl. 12:00 Hótel Norðurljósum
Hádegisverður
Kl. 13:00 Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Erindi: Hjörleifur Valsson segir frá fiðlu- og flautuvakningu í Þingeyjarsýslum. Með tóndæmum
Kl. 13:45
Erindi: Atli Freyr Hjaltason segir frá nýfundnum nótum og útgáfu nótnabókar Jónasar Helgasonar
Hjörleifur Valsson og Atli Freyr gefa tóndæmi
Kl. 14:30
Erindi: Guðrún Nordal heldur erindi um Guðmund Magnússon (Jón Trausta)
Félagar í Njólu kveða vísur hans
Kl. 15:15 Kaffi og meðlæti í Hnitbjörgum í boði kvæðamannahópsins Njólu
Kl. 16:15 Kvikmyndasýning í boði kvæðamannafélagsins Njólu:
„Frá ómi til hljóms — tónlistin á dögum Sveins Þórarinssonar amtskrifara"
Kl. 17:30 Tankinum Þeir sem vilja kveða stemmur í Tankinum
Kl. 19:30 Hótel Norðurljósum
Hátíðarkvöldverður
Kl. 21:00 Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Dansleikur við harmónikuleik Heimis S. Árnasonar
26. apríl, sunnudagur
Kl. 10:00 Félagsheimilinu Hnitbjörgum
Aðalfundur Stemmu
Kl. 12:00 Hótel Norðurljósum
Hádegisverður
Kl. 13:00 Heimskautagerði
Halldóra leiðir gönguför upp í Gerðið
Dagskráin er öllum opin að kostnaðarlausu
Gisting og kvöldmatur á Hótelinu á föstudagskvöld, pantið í síðasta lagi 17. apríl
(Kvöldmatur á föstudagskvöld á Hótelinu Matarmikil fiskisúpa með brauði kr. 3.200,-)
Hótel Norðurljós: Sími 465-1233 info@hotelnordurljos.is hotelnordurljos.is
Hreiðrið gistihús: Sími 782-9930 info@nesthouse.is nesthouse.is
Hreiðrið gistihús tekur 10.790 kr. pr mann pr. nótt
Eins manns herbergi, tveggja manna og hjónaherbergi, þriggja manna herbergi
Þar eru sameiginleg baðherbergi, sex að tölu
Húsið er á þremur hæðum og í húsinu eru þrjú eldhús og tvær setustofur
Hótel Norðurljós
1. Gisting, 2 manna herbergi, aðskilin rúm, 27.500-
2. Gisting, 2 manna herbergi, rúm saman/sundur, 29.500-
3. Gisting, 2 manna herbergi, hjónarúm, 32.500-
4. Gisting, 2 manna lítið herbergi, sameiginleg snyrting, 10.000- pr.mann
5. Blokk, 4 svefnherbergi, 6 manns. 10.000- pr.mann
6. Blokk, 2 svefnherbergi, 4 manns, 10.000- pr.mann
7. Morgunverður. 2.400- pr.mann. Ef beðið er um soðin eða steikt egg, bætast við 600 kr.
Sundlaugin á Raufarhöfn er opin
Á föstudag 17:00 – 19:30
Á laugardag 14:00 – 16:30
Gunnubúð á Raufarhöfn er opin
A föstudag 10:30 – 17:00
Á laugardag 12:00 – 15:00
Information for this event is available only in Icelandic.

Höfnin
laugardaginn, 27. júní — til sunnudags, 19.júlí
Hugmynd Péturs Arnar Friðrikssonar að sýningunni er unnin út frá höfninni á Raufarhöfn, innsiglingingunni og tengingunni við hafið. Land og sjór eru í erfiðu sambandi, blautu og köldu, en árangursríku. Pétur Örn teiknar verksmiðju inn í tankinn með ljósi og hljóði. Inn kemur hráefni og út kemur ný vara, eftir orkufrekt og hávaðasamt ferli.
Hann stillir upp manngerðum hlutum í samspili við gangverk alheimsins, orsök, afleiðingu og endurtekningu. Frumstætt ljósverk; ljós á línu við spegla lýsa upp rýmið, hvert í aðra átt á eftir öðru. Teikning fellur á verk sem verður kvik. Þetta er einfaldasta form af kvikmynd.
Undir verkinu er drynur verksmiðjan.
The Harbour
Saturday, 27th of June — Sunday, 19th of July
Pétur Arnar Friðriksson's idea for the exhibition is based on the harbor at Raufarhöfn, the entrance and the connection to the sea. Land and sea are in a difficult relationship, wet and cold, but effective. Pétur Örn draws a factory into the tank with light and sound. Raw materials come in and a new product comes out, after an energy-intensive and noisy process.
He arranges man-made objects in interaction with the dynamics of the universe, cause, effect and repetition. A primitive light work; lights on a line by mirrors illuminate the space, one in one direction after the other. A drawing falls on a work that becomes dynamic. This is the simplest form of film.
Underneath the work is the humming factory.
Þunnt skæni á logandi vök
sunnudag 2. ágúst klukkan 20:00
Kammeróperan Þunnt skæni á logandi vök á sér sögu:
Ópernt skæni á logandi vök, sunnudag 2. ágúst klukkan 20:00an er upprunalega samin við líbrettó ástralsks höfundar og var flutt fyrst í Reykjavík 2021 í miðjum faraldri og síðan í Ástralíu árið 2023. Hún fjallaði á heimspekilegan og dramatískan hátt um skógarelda sem eru mikil ógn víða í Ástralíu.
Fyrir tveimur árum var ákveðið að snúa óperunni að hluta til upp á íslenskan veruleika. Magnea J. Matthíasdóttir tók að sér að gera nýtt libretto, ljóðabálk. Eldtengingunni var haldið en ógnin hér á landi er ekki skógareldar heldur eldgos eins og fólkið á Suðurnesjum hefur orðið áþreifanlega vart við síðustu ár. Þannig að ljóðið fjallar núna bæði um eld úr iðrum jarðar og eld að ofan, svörtu sængina sem getur bæði verið kulnað hraun og brunninn skógur og land. Ljóðið er skrifað frá sjónarhorni lands og náttúru, Gaiu sjálfrar, hún lýsir endalokum og nýju upphafi. Hlustandanum er í sjálfsvald sett hvort hann sér mannkyn fyrir sér vera hluta af hinu nýja upphafi eður ei.
Flutningur í Tönkunum á Raufarhöfn setur nýtt ljós og stemningu í verkið. Fjarri skógareldum, fjarri eldsumbrotum en hrátt umhverfi og vídeósýning Ásdísar Thoroddsen munu skapa mikil hughrif og stemningu við verkið.
Flytjendur eru Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og kammerhópurinn Camerarctica.
A Thin Veneer on a Fiery Pool
Sunday 2nd of August at 20:00
The Chamber Opera A Thin Veneer on a Fiery Pool (org. Þunnt skæni á logandi vök) was originally composed to a libretto by an Australian author and first performed in Reykjavík in 2021 while the world was still grappling with the Covid pandemic. It was later performed in Australia in 2023. The opera deals in a philosophical and dramatic way with the devastating bushfires which are the greatest natural threats throughout Australia.
Two years ago, it was decided to make the opera more relevant to Icelandic reality. Magnea J. Matthíasdóttir was approached to create a new libretto, in the form of a long poem. As in the original Australian version, fire was still the subject-matter, but the threat here in Iceland is not from forest fires, but volcanic eruptions, as the inhabitants of the Reykjanes peninsula in Southwest Iceland can attest to after the upheavals of the past few years. The poem deals with fire, both from the bowels of the earth as well as from above: a black blanket which can either be cooling lava or else the burnt forests and scorched land. The poem is written from the perspective of the land and Nature, the eternal Gaia, herself, describing both the end and also new beginnings. We leave it to the listener to decide whether mankind is a part of the new beginning – or not.
The performance, in the old abandoned storage-tanks at Raufarhöfn, north-east Iceland, gives a new dimension to the experience. Far from forest fires, far from volcanic upheavals, yet at the same time, a raw environment and the cinematic exhibition by Ásdís Thoroddsen will create an inspiring setting for the work.
The opera is performed by soprano Hallveig Rúnarsdóttir with the chamber ensemble Camerarctica.
Hjartaglóð
laugardag 8. ágúst klukkan 16:00
„Hjartaglóð" er samstarfsverkefni tónlistamannsins Georgs Péturs Sveinbjörnssonar og eldsmiðsins Einars Gunnars Sigurðssonar. Georg Pétur (undir heitinu Inside Bilderberg) skapar hljóðheim á ferðatölvu, hljóðgervil, hljómborð, sýlófón, tungutrommu og fleira sem notast má við sem hljóðgjafa, eins og til dæmis lítil járnstykki smíðuð af Einari Gunnari.
Einar Gunnar mun standa við smáa ferða-eldsmiðju og smíða lítil hjörtu úr járni og blandast höggin á heitt járnið og snarkið í glóðinni inn í hljóðheiminn.
Rödd föður Georgs Péturs, Sveinbjörns Beinteinssonar kvæðamanns, verður einnig hluti af verkinu að einhverju marki.
Á meðan hljóðheimurinn ómar er myndbandi varpað á veggi Tanksins með ýmsum myndskeiðum, sem tengjast eldsmíði, norrænni goðafræði og skyldu efni.
Heart Ember
Saturday, 8th of August at 16:00
"Heart Ember" is a collaborative project between musician Georg Pétur Sveinbjörnsson and blacksmith Einar Gunnar Sigurðsson. Georg Pétur (under the name Inside Bilderberg) creates a soundscape on a laptop, a synthesizer, keyboard, a tongue drum, a xylophone, a shaker and more, which can be used as a sound source, such as small pieces of iron made by Einar Gunnar.
Einar Gunnar will stand at a small mobile forge and make little hearts out of iron, and the blows on the hot iron and the sizzle of the embers will blend into the soundscape.
The voice of Georg Pétur's father rhyme singer Sveinbjörn Beinteinsson, will also be a part of the work to some extent.
While the soundscape resonates, a video is projected onto the walls of the Tank with various videos related to forging, Norse mythology and related topics.